Fotbolti.net
23.10.26 - 21:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Ég var nokkuð viss um að þetta væri ekki rautt"

„Ég var nokkuð viss um að þetta væri ekki rautt"
Canon

Mynd: EPA

Það kom upp umdeilt atvik í jafntefli Ipswich og Nottingham Forest í kvöld þegar Issa Diop, leikmaður Ipswich, braut á James McAtee, leikmanni Forest.

McAtee var við það að sleppa í gegn þegar Diop fór í tæklinguna. Atvikið var skoðað í VAR og niðurstaðan var sú að McAtee sparkaði boltanum frá markinu og Diop fékk því aðeins gult spjald.
„Ég held að þetta sé ekki rautt, ég fór í tæklinguna því ég sá Leif Davies vera fyrir atan. Hann [James McAtee] setur boltann framhjá og Leif var þarna til að verjast. Ég held ekki að þetta sé rautt. Ég var nokkuð viss um það," sagði Diop.

Nýliðar Ipswich sitja í 9. sæti með tíu stig eftir átta umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.