24.10.26 - 10:10
Brynjar Ingi Erluson
Malacia um dvölina hjá Man Utd: Þetta var mjög erfitt andlega

Tyrell Malacia

Mynd: EPA

Ten Hag fékk Malacia frá Feyenoord

Mynd: Man Utd

Malacia fór til PSV á láni árið 2025

Mynd: EPA

Tyrell Malacia

Mynd: EPA
Tyrell Malacia, fyrrum leikmaður Manchester United, fór yfir tímann hjá félaginu í viðtali við BBC.
Malacia kom til Manchester United frá Feyenoord árið 2022 fyrir 14,6 milljónir punda. Hann lék 39 leiki á sínu fyrsta tímabili, en varð síðan fyrir alvarlegum meiðslum sem héldu honum lengi frá keppni.
Erik ten Hag, sem hafði fengið Malacia til United, var rekinn í byrjun tímabilsins 2024-2025 og Ruben Amorim tók við. Malacia náði hins vegar aldrei að vinna sér sæti í liðinu undir stjórn Amorim og endaði í hinum svokallaða sprengjuhópi, þar sem voru leikmenn sem félagið vildi losna við og Amorim hafði ekki lengur not fyrir.
Malacia var langt frá því að vera sáttur við hvernig komið var fram við hann á þessum tíma.
„Ég veit ekki hvaðan þetta nafn kom. Ég veit ekki hvort það var Ruben Amorim eða einhverjir í stjórn félagsins sem fundu það upp, en ég sagði aldrei neitt um það. Ég hélt bara áfram að mæta og gera mitt, þótt það væri stundum erfitt að æfa í aðeins fimm manna hópi.“
„Á endanum fóru Marcus (Rashford), (Alejandro) Garnacho og Antony og þá var ég orðinn einn eftir. Ég æfði með varaliðinu og stundum með U18 ára liðinu eða jafnvel yngri flokkum. Þetta var mjög erfitt andlega.“
„Ég hefði auðveldlega getað sagt að ég nennti þessu ekki lengur og einfaldlega hætt að mæta á æfingar. En ég vissi að það myndi ekki hjálpa mér. Þá hefði félagið getað bent á það og sagt: 'Þarna sjáið þið af hverju hann er í þessum hópi og þarf að æfa einn.' Ég ákvað því bara að halda haus, leggja hart að mér og láta verkin tala.“
„Ég hélt mér alltaf í góðu formi eftir að ég kom til baka úr meiðslunum, en fólk vissi það ekki. Það sá bara að ég var ekki að spila og velti fyrir sér af hverju.“
Amorim var rekinn í byrjun þessa árs og Michael Carrick tók við. Malacia ræddi við hann um framtíð sína, en þrátt fyrir að vilja yfirgefa félagið fékk hann ekki að fara.
„Ég átti góð samtöl við Michael (Carrick) þegar hann kom. Ég vildi auðvitað fara, en svo komu upp meiðsli í liðinu og hann sagði að ég gæti ekki farið því hópurinn væri orðinn of fámennur.“
„Það var erfitt að sætta sig við það. Ég vissi að ég væri ekki að fara að spila, en fékk samt ekki að fara. Ég skildi því ekki alveg hver tilgangurinn væri með því að halda mér áfram hjá félaginu. Hann útskýrði þetta þó fyrir mér og ég skildi betur hvernig staðan var.“
„Þegar öllu er á botninn hvolft eru allir að hugsa um sína eigin hagsmuni. Ég var þarna fyrir sjálfan mig, en auðvitað líka fyrir liðið. Stjórinn var sömuleiðis að hugsa um sína stöðu því hann þurfti að standa sig vel og halda starfinu.“
„Ég sé samt ekki eftir neinu. Fyrsta tímabilið mitt var frábært og ég vann með yndislegu fólki og frábærum leikmönnum. Ég naut þess tíma,“ sagði Malacia.
Malacia yfirgaf United þegar samningur hans rann út í sumar, en hann gekk í raðir Cincinnati í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Þar hefur hann spilað fjóra leiki og gefið tvær stoðsendingar.