Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 24. nóvember 2022 14:58
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Portúgals og Gana: Ronaldo mætir til leiks
Ronaldo og Bruno eru hlið við hlið í klefanum.
Ronaldo og Bruno eru hlið við hlið í klefanum.
Mynd: Getty Images
Úrúgvæ og Suður-Kórea gerðu markalaust jafntefli í H-riðli en klukkan 16 verður leikur Portúgals og Gana á dagskrá.

Maðurinn sem er á allra vörum, Cristiano Ronaldo, mætir til leiks. Með honum í byrjunarliðinu er Joao Felix en leikmaðurinn ungi hefur átt erfitt uppdráttar hjá Atletico Madrid.

Ronaldo tók ekki þátt í síðasta æfingaleik portúgalska liðsins vegna veikinda en er klár í slaginn.

Thomas Partey, leikmaður Arsenal, er meðal leikmanna í byrjunarliði Ganverja.

Byrjunarlið Portúgals: Diogo Costa; Cancelo, Danilo, Rúben Dias, Guerreiro; Neves; Bruno Fernandes, Bernardo Silva, Otávio, João Félix; Ronaldo

Byrjunarlið Gana: Ati Zigi, Salisu, Rahman, Amartey, Partey, Kudus, Abdul Samed, Djiku, Seidu, Inaki, Ayew.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner