24.11.26 - 12:40
Elvar Geir Magnússon
Grealish hleypt úr skammarkróknum og spilaði í gær

Jack Grealish.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Jack Grealish.

Mynd: EPA
Jack Grealish sneri aftur í leikmannahóp Everton eftir agabann og kom inn sem varamaður í hálfleik í tapinu gegn Brentford í gær.
Grealish, sem er á láni frá Manchester City, var refsað fyrir að fara á tveggja daga fyllerí og mæta ekki til æfinga.
Hann kom inn í hálfleik í gær og lék sinn fyrsta leik í rúman mánuð. Everton var 2-0 undir og manni færri þegar hann kom inn á völlinn. Brentford vann á endanum 4-0.

TENGT EFNI
Grealish biðst afsökunar - „Elska að spila fyrir þetta félag“
„Hann hefur afplánað refsingu sína og við munum koma fram við hann eins og við komum fram við hann áður. Við höldum áfram," sagði David Moyes, stjóri Everton, fyrir leikinn.
Grealish er á láni frá Manchester City eftir að hafa fallið aftarlega í goggunarröðina þar, þrátt fyrir að hafa kostað félagið 100 milljónir punda árið 2021. Hann skoraði tvö mörk í 22 leikjum fyrir Everton á láni á síðasta tímabili áður en þeirri lánsdvöl lauk vegna meiðsla hans. Hann hefur spilað sjö leiki á þessu tímabili.