Jónas Guðni: Héldum að það væri ekki séns að fá hann

Var frábær fyrir Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Keflavík

Haraldur Freyr og Jónas Guðni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útilokar ekki að reyna aftur við Radic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vilja fá Gyrði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðræður við Tuma ganga vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var frábær fyrir Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Jónas Guðna Sævarsson sem er yfirmaður fótboltamála í Keflavík.

Joacim Holtan óvænt í Keflavík (Staðfest)
„Við héldum lengi vel og skildum þetta þannig að Afturelding væri bara að klára samningaviðræður við hann. Svo fáum við fréttir af því að það sé einhvern veginn ekki alveg að ganga eftir og við ákváðum að grípa tækifærið, stukkum inn og náðum að landa þessu mjög fljótt. Við vorum náttúrulega búnir að vera með augu á honum en héldum að við ættum ekki séns í hann."
„Það er frábært að ná að landa honum. Hann er í Noregi í núna, Halli átti gott spjall við hann á norsku. Hann er flottur strákur, akkúrat það sem við vorum að leitast eftir, leikmanni með reynslu inn í þetta lið sem við erum að byggja upp. Við missum Stebba og fáum Holtan inn."
Haraldur Freyr Guðmundsson, Halli, er þjálfari Keflavíkur. Hann lék með Álasund og Start í Noregi á sínum tíma.
Stebbi, Stefan Alexander Ljubicic skoraði tólf mörk fyrir Keflavík í sumar en samdi við Breiðablik fyrir helgi. Eru Holtan og Ljubicic svipaðar týpur?
„Nei, Joacim er minni. Það væri æðislegt ef hann myndi skora jafnmikið af mörkum og Stebbi í ár, en ég sé þá ekki sem svipaðar týpur fyrir utan það að þeir eru báðir senterar. Annars eru þeir ólíkar týpur."
Mun Keflavík spila öðruvísi fótbolta?
„Nei, ég hugsa ekki. Joacim kemur sér inn í boxið, skorar sín mörk þar. Stebbi var að skora sín mörk þar líka. Mögulega verður uppspilið ekki eins, en ég held að okkar leikur breytist ekki mikið."
Skynjar þú af hverju hann endar hjá ykkur en endar ekki hjá Aftureldingu?
„Ég held að hann hafi viljað vera áfram, hafi verið spenntur fyrir því að komast upp í efstu deild. Svo erum við framherjalausir og getum boðið honum það sem hann var að biðja um. Þannig náðum við honum, held það sé ekkert annað. Ég hef trú á því að Halli hafi náð að heilla hann á norsku, Halli er reiprennandi á norsku og þeir áttu gott samtal."
Hafa rætt við Gyrði, viðræður við Tuma ganga vel og útilokar ekki Radic
Keflvíkingar vilja fá inn miðjumann, kantmann og framliggjandi miðjumann.
Félagið hefur þá m.a. verið orðað við Tuma Þorvarsson (2005) hjá HK, Gyrði Hrafn Guðbrandsson (1999), Bjarka Björn Gunnarsson (2000) ÍBV og Dominik Radic (1996) hjá HK.

Keflavík virkjaði ákvæði Tuma - Orðaðir við tvo aðra
„Við erum búnir að spjalla nokkrum sinnum við Gyrði, erum mjög spenntir fyrir honum, sjáum hann geta tekið mjög stórt hlutverk hjá okkur. Hann er leiðtogatýpa sem við erum að leita að fyrir liðið og vonandi gengur það vel."
„Viðræðurnar við Tuma ganga vel, en það er ekki alveg klárað. Tumi er spenntur fyrir okkur og við fyrir honum, sjáum hann fyrir okkur í stóru hlutverki. Hann getur spilað fleiri stöðu en eina, er ungur og fljótur og smellpassar inn í það sem við erum að leita að."
„Varðandi Radic þá þarf meira en einn framherja, við erum ekki búnir að útiloka þann möguleika. Við höfum ekki komist áfram með það, höfum boðið nokkrum sinnum í hann en HK hefur neitað. Ef það myndi einhvern veginn opnast, þá erum við spenntir fyrir honum. Hann er meira eins og Stefan, stór og sterkur. Það er ekki útilokað að við höldum áfram með það."
Jónas segir að spænski varnarmaðurinn Nacho Heras sé með ákvæði í samningi sínum og verði áfram hjá félaginu.
„Hann er búinn að vera í fríi, höfum ekki klárað hans mál, en hann er í rauninni með áframhaldandi samning," segir Jónas að lokum.


Mynd: Keflavík

Haraldur Freyr og Jónas Guðni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útilokar ekki að reyna aftur við Radic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vilja fá Gyrði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðræður við Tuma ganga vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nacho spilaði það marga leiki að samningur hans endurnýjast sjálfkrafa.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
