Fotbolti.net
24.11.26 - 19:39
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeildin: Aston Villa tapaði í Tyrklandi

Galatasaray hafði betur gegn Aston Villa

Galatasaray hafði betur gegn Aston Villa

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Tveimur fyrstu leikjum kvöldsins í 5. umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu er lokið, en Evrópudeildarmeistarar Aston Villa töpuðu 1-0 fyrir tyrknesku meisturunum í Galatasaray í Istanbúl.
Það var ekki mikið um að vera í fyrri hálfleiknum þrátt fyrir að Villa væri mun meira með boltann.

Gestirnir sköpuðu sér nokkur færi, en þau voru fá og ekkert þeirra sérstaklega hættulegt.

Snemma í síðari hálfleik vildu Villa-menn fá vítaspyrnu þegar Ian Maatsen féll í teignum, en ekkert var dæmt og atvikið ekki tekið til skoðunar hjá VAR.

Þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka dró hins vegar til tíðinda. Varamaðurinn Deniz Gul skallaði þá boltann að marki eftir hornspyrnu og þaðan fór hann af Tyrone Mings og í netið. Heimamenn komnir yfir.

Atvikið hefði þó getað reynst Villa enn dýrkeyptara, því í aðdraganda marksins var mögulegt rautt spjald á Nicolas Jackson til skoðunar eftir að hann fór með fótinn í höfuð Gul. Jackson slapp hins vegar með skrekkinn.

Villa-menn lögðu allt í sölurnar til að jafna metin á lokamínútunum, en höfðu ekki erindi sem erfiði og Galatasaray fagnaði 1-0 sigri.

Bæði lið eru nú með níu stig, en Villa situr í sjöunda sæti og Galatasaray í því þrettánda.

Norska liðið Bodö/Glimt vann þá dramatískan 1-0 sigur á LASK Linz.

Allt stefndi í markalaust jafntefli þegar komið var fram í uppbótartíma, en þá steig varamaðurinn Andreas Helmersen fram og skallaði boltann yfir marklínuna eftir fyrirgjöf frá hægri.

Gríðarlega mikilvægt mark fyrir Bodö/Glimt sem fagnaði þar með sínum öðrum sigri í Meistaradeildinni á tímabilinu.

Norska liðið er nú í 16. sæti með sjö stig, en LASK situr í 18. sæti með sex stig.

Bodo-Glimt 1 - 0 LASK Linz
1-0 Andreas Helmersen ('90 )

Galatasaray 1 - 0 Aston Villa
1-0 Deniz Gul ('77 )
Meistaradeildin: Aston Villa tapaði í Tyrklandi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.