Fotbolti.net
25.03.25 - 15:43
Elvar Geir Magnússon

Ísabella fer til stórliðs Rosengard og Valur reynir að fá Úlfu Dís

Ísabella Sara Tryggvadóttir.

Ísabella Sara Tryggvadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Eins og greint var frá í dag þá er Ísabella Sara Tryggvadóttir að yfirgefa Val og á leið til Svíþjóðar, Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er um að ræða stórliðið Rosengard í Malmö.

Rosengard er ríkjandi Svíþjóðarmeistari og eitt stærsta kvennafélag Skandinavíu.

Ísabella skoraði þrjú mörk í Bestu deildinni 2023 og sex mörk á síðasta tímabili. Hún varð Íslandsmeistari 2023 og bikarmeistari í fyrra.
Ísabella Sara yfirgefur Val og heldur til Svíþjóðar
TENGT EFNI

Ísabella Sara yfirgefur Val og heldur til Svíþjóðar

Heimildir herma að Valur hafi gert tilboð í Úlfu Dís Kreye Úlfarsdóttur leikmann Stjörnunnar og vilji fá hana til að fylla skarðið sem Ísabella mun skilja eftir sig.

Úlfa Dís skoraði sjö mörk í átján leikjum fyrir Stjörnuna í Bestu deild kvenna í fyrra. Hún er fædd 2001 og á fjóra unglingalandsleiki.
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir.

Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.