26.10.26 - 17:23
Elvar Geir Magnússon
Mikið gert til að halda niðurstöðunni leyndri fram á síðustu stundu

Dembele tók gullboltann í fyrra.

Mynd: EPA

Harry Kane er talinn sigurstranglegastur.

Mynd: EPA

Dembele tók gullboltann í fyrra.

Mynd: EPA
Sigurvegari Ballon d'Or gullboltans verður tilkynntur í London í kvöld.
Veðbankar telja Harry Kane, markahrók Bayern München og fyrirliða enska landsliðsins, vera sigurstranglegastan. Spænski kantmaðurinn Lamine Yamal og franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe koma þar á eftir, og svo Lionel Messi.
Mirror segir að fólkið í kringum Harry Kane sé sigurvisst.

TENGT EFNI
Af hverju er gullboltahátíðin í London?
France Football hefur stigið skref til að passa upp á að niðurstaðan leki ekki út. Á árum áður var það algengt að úrslitin höfðu lekið áður en kom að sjálfum verðlaunadeginum.
Pascal Ferre, fyrrverandi yfirmaður Ballon d'Or, segir að sigurvegarinn hafi ekki enn verið látinn vita en áður var helstu tilnefndu aðilum tilkynnt um úrslitin fyrirfram.
„Frá og með árinu 2024 hefur sigurvegurum ekki verið lengur tilkynnt um úrslitin fyrir athöfnina. Þegar þeir koma á staðinn í London vita þeir vita ekki hver úrslitin eru," segir Ferre.
Hann segir að til að halda nafni sigurvegarans leyndu sé passað upp á að sem fæstir viti af því.
„Eins og staðan er núna eru líklega ekki fleiri en fimm manns sem vita hver sigurvegarinn er.“