Fotbolti.net
26.10.26 - 20:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Var áfram hjá Athletic Bilbao þrátt fyrir áhuga stórliða - „Efaðist aldrei"

Var áfram hjá Athletic Bilbao þrátt fyrir áhuga stórliða - „Efaðist aldrei"
Canon

Mynd: EPA

Nico Williams, leikmaður Athletic Bilbao, var sterklega orðaður við Barcelona í sumar en hann var harður á því að vera áfram í Bilbao.

„Ég efaðist aldrei um að vera hér. Ég fékk óteljandi tilboð í sumar og undanfarin ár en ég vil vera hér," sagði Williams.
„Ætlun mín um að vera hér er ótvíræð. Það eru allir að tala um Barcelona en ég hafði líka möguleika á að fara til PSG og Arsenal en vildi alltaf vera hér."

Willams meiddist í síðasta landsliðsverkefni með Spáni en hann hefur skorað eitt mark í átta leikjum með Bilbao á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.