26.10.26 - 17:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jakob áfram hjá Þrótti (Staðfest) - Önnur félög sýndu áhuga


Mynd: Þróttur


Mynd: Þróttur
Unglingalandsliðsmaðurinn Jakob Ocares Kristjánsson hefur skrifað undir endurnýjun á samningi við Þrótt en fyrri samningur hefði runnið út í lok árs.
Jakob er uppalinn Þróttari, fæddur 2009, og var með lausan samning. Miðjumaðurinn var í risastóra slúðurpakkanum orðaður við bæði Þór og Val en hann hélt tryggð við uppeldisfélagið.
Jakob er uppalinn Þróttari, fæddur 2009, og var með lausan samning. Miðjumaðurinn var í risastóra slúðurpakkanum orðaður við bæði Þór og Val en hann hélt tryggð við uppeldisfélagið.
Hann kom við sögu í tólf leikjum í Lengjudeildini í sumar og skoraði eitt mark. Hann kom þá við sögu í einum leik í umspilinu sem Þróttur vann og tryggði sér með því sæti í Bestu deildinni á komandi tímabili.
Jakob á að baki ellefu leiki fyrir unglingalandsliðin.
Í tilkynningu Þróttar er talað um endurnýjun á samningi en ekki hversu langur samningurinn er.
Jakob á að baki ellefu leiki fyrir unglingalandsliðin.
Í tilkynningu Þróttar er talað um endurnýjun á samningi en ekki hversu langur samningurinn er.
