Fotbolti.net
26.10.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carrick stýrir æfingu á morgun

Carrick stýrir æfingu á morgun
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Michael Carrick, stjóra Man Utd, hangir á bláþræði eftir tap liðsins gegn Bournemouth um helgina.

Carrick mætti á Carrington-æfingasvæði liðsins til að fylgjast með U21 liðinu spila gegn Hull fyrir luktum dyrum.
Carrick mættur á æfingasvæðið
TENGT EFNI

Carrick mættur á æfingasvæðið

framkvæmdastjórinn Omar Berrada og Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála, voru báðir á svæðinu að ræða framtíð hans.

Það var frí hjá aðalliðinu í dag en liðið mætir aftur til æfinga á morgun. Laurie Whitwell hjá The Athletic segir að það verði ekki tekin ákvörðun um að reka Carrick á morgun og hann muni stýra æfingu.

Man Utd heimsækir Chelsea um helgina og það er óvíst hvort Carrick verði enn við stjórnvölin. Eddie Howe, fyrrum stjóri Newcastle, og Julian Nagelsmann, fyrrum landsliðsþjálfari Þýsklands, eru líklegastir til að taka við liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.