Fotbolti.net
26.10.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Kane mun aldrei eiga betri möguleika"

„Kane mun aldrei eiga betri möguleika"
Canon

Mynd: EPA

Það kemur í ljós í kvöld hver mun hreppa Ballon d'Or gullboltann en veðbankar telja að Harry Kane muni vinna.

Athöfnin fer fram í Lundúnum í kvöld. Spænski fréttamaðurinn ræddi við enska fyrrum framherjann Alan Shearer sem vonar að landi sinn vinni verðlaunin.
„Við krossum fingur. Hann mun aldrei eiga betri möguleika á að vinna. Hvort sem það er Lamine Yamal, Kylian Mbappe eða Harry Kane. Hann hefur átt ótrúlega 18 mánuði. Tölurnar hans hafa verið ótrúlegar," sagði Shearer.

Kane vann þýsku deildina og bikarinn með Bayern á síðustu leiktíð og skoraði 61 mark í 51 leik. Þá skoraði hann sex mörk þegar vann bronsið á HM í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.