Fotbolti.net
26.10.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Yfirlýsing KFA: Harma ákvörðun Hattar

Yfirlýsing KFA: Harma ákvörðun Hattar
Canon

Mynd: FHL

Kvennaboltinn
Höttur sendi KFA bréf á dögunum og óskaði eftir því að slíta samstarfi um rekstur FHL sem endaði í 6. sæti Lengjudeildar kvenna í sumar.

KFA hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem ákvörðun Hattar er hörmuð.
FHL spilar undir merkjum Hattar á næsta ári
TENGT EFNI

FHL spilar undir merkjum Hattar á næsta ári

Í yfirlýsingu KFA kemur fram að það hafi verið undirritaður samstarfssamningur fyrir ári síðan sem gilda hefði átt út leiktíðina 2028 og engin uppsagnarákvæði hafi verið í samningnum.

Yfirlýsing KFA í heild sinni

Fimmtudaginn 22. október 2026 kl. 16:02 barst framkvæmdastjóra og formanni KFA tölvupóstur frá Rekstrarfélagi Hattar (RH). Efni tölvupóstsins var undirritað bréf þar sem RH sagði upp samstarfssamningi RH og KFA um FHL. Þessi samstarfssamningur var undirritaður 4. október 2025. Stjórn FHL hafði óskað eftir lengri samningi og úr varð að samið var til þriggja ára (3 keppnistímabil). Engin uppsagnarákvæði voru í samningnum. Áður fyrr hafði verið samið til eins árs í senn.

RH óskaði eftir að uppsagnarbréfið yrði lesið upp á aðalfundi FHL sem halda átti klukkan 20:00 22. október 2026 eða tæpum fjórum klukkustundum eftir að bréfið barst KFA. Þegar aðalfundur FHL hófst var honum frestað þar sem samþykkja þarf slit FHL á aðalfundi og þurfa þá að liggja fyrir gögn sem voru ekki tilbúin.

FHL var stofnað árið 2020 af Fjarðabyggð, Hetti og Leikni. Árið 2022 tók KFA við af Fjarðabyggð og Leikni og síðan þá hefur FHL verið rekið til helminga af Hetti og KFA.

FHL náði þeim frábæra árangri að komast í Bestu deildina árið 2025 og hefur skapað sér nafn á Íslandi í kvennaknattspyrnu.

Stjórn og framkvæmdastjóri KFA harma að ekki hafi verið óskað eftir samtali áður en ósk um slit á félaginu barst og telur að þessi ákvörðun Hattar hafi gríðarlega neikvæð áhrif á kvennaknattspyrnu á Austurlandi.

Í fréttatilkynningu frá RH kemur fram að ástæða uppsagnar sé aðallega sú að flestar stelpur í liðinu komi frá Hetti og að ferðakostnaður þeirra sé mikill að æfa og keppa í Fjarðabyggðarhöllinni. KFA hefur aldrei farið fram á að æft og spilað sé í höllinni. Það er eingöngu ákvörðun þjálfara og stjórnar FHL. Sannlega eru fleiri stelpur frá Hetti en KFA í FHL-hópnum en samt sem áður átti KFA 51 leikmann í byrjunarliði á Íslandsmótinu (26%) á móti 42 leikmönnum frá Hetti (21%). Erlendir leikmenn byrjuðu 105 leiki (53%).

KFA, Fjarðabyggð, fyrirtæki og félög í Fjarðabyggð hafa komið myndarlega að rekstri FHL frá upphafi og hefur FHL að meirihluta verið fjármagnað þaðan. KFA hefur sótt um samvinnustyrki til Fjarðabyggðar fyrir hönd FHL ásamt því að taka erlenda leikmenn, með dvalar- og atvinnuleyfi vegna íþróttaiðkunar, í vinnu í Fjarðabyggðarhöllinni og í þjálfun.

Stjórn KFA vinnur nú hörðum höndum að framtíðarsýn kvennaknattspyrnu hjá félaginu og KFA mun áfram styðja og styrkja veg kvennaknattspyrnu eins og áður.

Fjarðabyggð, 26. október 2026.

Stjórn og framkvæmdastjóri KFA.
Yfirlýsing KFA: Harma ákvörðun Hattar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Yfirlýsing KFA: Harma ákvörðun Hattar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Yfirlýsing KFA: Harma ákvörðun Hattar
Canon

Mynd: Raggi Óla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.