Solskjær: Leikurinn mun ekki fara 0-0

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá leiknum gegn Burnley fyrir leikinn gegn Leeds sem hefst klukkan 13:00.
Daniel James kemur inn fyrir Paul Pogba. <i>„Það þarf að hugsa þetta út frá leiknum í dag sem og komandi leikjum. Dan gerði mjög vel gegn Leeds á heimavelli, mikil orka, góður einn á móti einum og góður varnarlega. Allt sem tengist honum hentar þessum leik,"</I> sagði Solskjær um liðsvalið.

Solskjær segir þá að Marcus Rashford sé allur að koma til og hafi tekið fullan þátt í æfingu í gær, ekki fundið fyrir neinu og byrji því í dag.
Að lokum, um leikinn sagði hann: „Þetta verður ekki 0-0. Þetta eru tvö lið sem vilja sækja eins hratt og hægt er. Við vitum að þeir eru hættulegir þegar þeir sækja og öfugt."