Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. júlí 2021 15:59
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi Max-kvenna: Endurkomusigur í Eyjum
Olga Sevcova gerði sigurmark ÍBV
Olga Sevcova gerði sigurmark ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 2 - 1 Tindastóll
0-1 Aldís María Jóhannsdóttir ('22 )
1-1 Þóra Björg Stefánsdóttir ('30 )
2-1 Olga Sevcova ('58 )

ÍBV vann Tindastól 2-1 í 12. umferð Pepsi Max-deildar kvenna á Hásteinsvelli í dag. Eyjakonur lentu undir gegn nýliðunum en komu til baka og uppskáru sigur.

Aldís María Jóhannsdóttir kom Stólunum yfir á 22. mínútu en Eyjakonur jöfnuðu aðeins átta mínútum síðar.

Olga Sevcova skoraði sigurmark ÍBV á 58. mínútu og annað mark hennar í deildinni á þessu tímabili.

ÍBV er í 5. sæti með 16 stig en Tindastóll í 8. sæti með 11 stig.
Athugasemdir
banner
banner