Fotbolti.net
25.07.26 - 13:29
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Juventus lánar Openda til Lyon

Lois Openda

Lois Openda

Canon

Mynd: EPA

Belgíski framherjinn Lois Openda er á leið til franska félagsins Lyon á láni frá Juventus.
Openda er 26 ára gamall, snöggur og kraftmikill framherji sem Juventus fékk upphaflega að láni frá RB Leipzig síðasta haust.

Kaupskylda var í samningnum og var hún virkjuð eftir að ákveðnum skilyrðum var fullnægt. Juventus greiddi rúmar 40 milljónir evra fyrir Belgann, til viðbótar við lánsgjaldið.

Openda náði sér hins vegar aldrei almennilega á strik í Tórínó og er nú á leið til Lyon á láni út næsta tímabil. Ekkert kaupákvæði verður í samningnum en franska félagið greiðir þrjár milljónir evra fyrir lánsdvölina.

Fabrice Hawkins greinir frá því að Openda gangist undir læknisskoðun hjá Lyon í næstu viku.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.