Heinze pirrar Alex gamla enn frekar




Nýjasta vandamálið er svo að Alex Ferguson tekst ekki að hafa upp á leikmanninum en hann hefur þó haft spurnir af því að hann hafi verið fluttur á sjúkrahús eftir 4-0 sigur Argentínu á Kosta Ríka á sunnudag.
Ferguson sagði í gærkvöld að hann hafi mikið reynt að ná í leikmanninn en svo virðist sem enginn viti farsímanúmer hans. Tilraunir til að ná í hann í gegnum umboðsmanninn og argentísk knattspyrnuyfirvöld hafa orðið að engu og Ferguson komst svo að því í gærkvöld með því að kveikja á sjónvarpinu að Heinze væri kominn aftur í landslið Argentínu.
Ferguson er pirraður yfir að Heinze hefur ekki enn sett sig í samband við nýja vinnuveitendur sína en Ferguson sagði: ,,Við höfum heyrt að hann hafi meiðst en enginn frá Argentínu hefur verið í neinu sambandi. Við lásum að þetta séu mjaðmarmeiðsli og að hann hafi verið fluttur á sjúkrahús, svo þetta er augljóslega áhyggjuefni. En við höfum ekki náð sambandi við hann."
Sjá einnig:
Sir Alex: Heinze spilar jafnvel aldrei fyrir United!
United menn ekki sáttir við Ólympíuleikana
Heinze ekki með Man Utd í upphafi tímabils
Heinze til Man Utd (Staðfest)
