Fylkismenn fengu Fjölni í heimsókn á Wurth völlinn þegar flautað var til leiks í 12. umferð Pepsi Max deildar karla nú í kvöld.
Fylkir hafði fyrir leikinn í kvöld einungis náð í fjögur stig úr síðustu fimm leikjum í deildinni og því mátti búast við hörkuleik þegar Fjölnismenn komu í heimsókn. Leikar enduðu með sigri Fylkis 2-0.
Fylkir hafði fyrir leikinn í kvöld einungis náð í fjögur stig úr síðustu fimm leikjum í deildinni og því mátti búast við hörkuleik þegar Fjölnismenn komu í heimsókn. Leikar enduðu með sigri Fylkis 2-0.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 0 Fjölnir
„Góð, alltaf gott að vinna, hörku leikur, fannst við vera góðir, fannst við vera góðir úti á velli, vorum kannski í smá basli inni á síðasta þriðjung að skapa okkur einhver afgerandi færi en vorum töluvert meira með boltann og létum hann ganga vel á milli manna, komumst yfir á föstu leikatriði og svo hleypum við þeim aðeins inn í leikinn og þeir voru alveg líklegir til þess að jafna þangað til að við skorum þetta annað mark en fyrst og fremst ánægður með stígin þrjú." Sagði Ólafur Ingi Skúlason leikmaður og aðstoðarþjálfari Fylkis eftir leik.
Efir að Fylkismenn komust yfir lögðust þeir aðeins tilbaka og hleyptu Fjölni svolítið inn í leikinn og vildi Ólafur Ingi meina að þeir hafi verið sjálfum sér verstir.
„Já, Við vitum alveg að þeirra styrkleikar liggja kannski fyrst og fremst í því að sækja hratt og við vissum það alveg fyrir leikinn og mér fannst við bara vera svolítið passívir og sjálfum okkur verstir í stöðunni 1-0 og dettum svolítið niður og svolítið hræddir við að halda í boltann og hræddir að gera mistök og það svolítið skein í gegn hjá okkur og við vorum farnir að verja eitthvað í staðinn fyrir að keyra bara á þá eins og við höfðum gert."
Það voru mikil læti í stúkunni miðað við fjölda og vildi Ólafur Ingi ekki meina að það hefði smitast inn á völl.
„Nei ég tók ekkert eftir því en það er bara flott að þeir fáu sem fá að vera hérna að endilega láta heyra í sér."
Athugasemdir























