Fotbolti.net
25.10.20 - 12:21
Ívan Guðjón Baldursson

Æfingaleikur: Keflavík skoraði fimm gegn Víði - Sjáðu mörkin

Æfingaleikur: Keflavík skoraði fimm gegn Víði - Sjáðu mörkin
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Keflavík 5 - 0 Víðir</b>
1-0 Dagur Ingi Valsson ('50)
2-0 Sindri Þór Guðmundsson ('71)
3-0 Tristan Freyr Ingólfsson ('74)
4-0 Gunnólfur Björgvin Guðlaugsson ('82)
5-0 Jóhann Þór Arnarson ('84)
Keflavík og Víðir áttust við í æfingaleik á meðan Íslandsmótið í fótbolta er í pásu vegna Covid-19 takmarkana.

Keflavík, sem stefnir upp í Pepsi Max-deildina, skoraði þá fimm mörk í grannaslag gegn Víði, sem er í fallbaráttu 2. deildar. Staðan var markalaus í leikhlé en flóðgáttirnar opnuðust í síðari hálfleik.

Dagur Ingi Valsson kom heimamönnum yfir í upphafi síðari hálfleiks og tuttugu mínútum síðar tvöfaldaði Sindri Þór Guðmundsson forystuna.

Tristan Freyr Ingólfsson, Gunnólfur Björgvin Guðlaugsson og Jóhann Þór Arnarson bættu við mörkum á lokakaflanum.

Leikurinn var tekinn upp og er aðgengilegur á YouTube rás Keflavíkur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.