25.10.26 - 16:58
Brynjar Ingi Erluson
Siggi Raggi gerði NSÍ að meisturum í fyrsta sinn í 19 ár

Sigurður Ragnar er færeyskur meistari með NSÍ

Mynd: NSÍ Runavík

Alex Freyr fagnar meistaratitlinum í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ Runavík eru orðnir Færeyjameistarar í annað sinn í sögunni eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við HB í næstsíðustu umferð deildarinnar í dag.
Fyrir leikinn var ljóst að NSÍ nægði eitt stig til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.
Það var þó allt í járnum og útlitið orðið svart þegar HB komst yfir þegar hálftími var eftir af leiknum.
Á 84. mínútu steig Petur Knudsen hins vegar fram og jafnaði metin fyrir NSÍ. Markið reyndist gulls ígildi og tryggði liðinu deildarmeistaratitilinn.
Ótrúlegar senur, en þetta er aðeins í annað sinn í sögu NSÍ sem félagið verður meistari og í fyrsta sinn síðan 2007.
Sigurður Ragnar tók við liðinu í desember og hefur náð ótrúlegum árangri á skömmum tíma. Hann fékk Alex Frey Elísson til félagsins frá Njarðvík, en Alex lék 22 deildarleiki, skoraði eitt mark og lagði upp þrjú.
Það verður eflaust fagnað langt fram eftir í Færeyjum, en framtíð þeirra beggja er óljós. Sigurður Ragnar er að skoða alla möguleika og ekki útilokað að hann snúi aftur í íslenska boltann.
Alex, sem er samningsbundinn félaginu út tímabilið, hefur á meðan verið orðaður við félög í Bandaríkjunum, Kanada og Póllandi, auk þess sem möguleiki er á að hann snúi aftur heim.