Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. nóvember 2020 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Draumur Wilshere að snúa aftur til Arsenal
Wilshere í leik með Arsenal fyrir nokkrum árum.
Wilshere í leik með Arsenal fyrir nokkrum árum.
Mynd: Getty Images
Miðjumanninum Jack Wilshere dreymir um að snúa aftur til Arsenal.

Wilshere er uppalinn hjá Arsenal og steig þar upp. Hann spilaði þar þangað til 2018, en þá rann samningur hans út. Hann sýndi oft lipra takta, en fann ekki nægilega mikinn stöðugleika vegna meiðsla.

Wilshere fór frá Arsenal til West Ham, en samningi hans þar var rift fyrir nokkrum vikum síðan. Hann átti þar áfram í vandræðum með meiðsli.

Hinn 28 ára gamli Wilshere er í leit að félagi og dreymir um endurkomu til Arsenal þó ólíklegt sé að það gerist.

„Ég er Arsenal maður. Ég hef ekki talað við neinn eða neitt, en það væri draumur," sagði Wilshere við ITV Football Football Show.

„Það er örugglega enginn möguleiki á að það gerist en ég er Arsenal maður, ég elska félagið og ég vil að því gangi vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner