Í dag hefst Mjólkurbikar kvenna með tveimur leikjum en það eru einu tveir leikirnir í fyrstu umferð keppninnar.
SR, KM og KH eru öll að koma ný inn í Íslandsmótið og þau hefja leik í dag. ÍR, sem hafnaði í neðsta sæti 2. deildar kvenna í fyrra, mætir KH og SR og KM eigast við.
Það er jafnframt leikið í Mjólkurbikar karla en það er síðasti leikurinn í 1. umferðinni. Reynir Hellissandi tekur á móti Aftureldingu, sem leikur í Lengjudeildinni.
mánudagur 26. apríl
Mjólkurbikar karla
18:00 Reynir H-Afturelding (Hellissandsvöllur)
Mjólkurbikar kvenna
19:15 SR-KM (Eimskipsvöllurinn)
19:15 ÍR-KH (Hertz völlurinn)
Athugasemdir