26.06.11 - 19:37
Magnús Már Einarsson
Atli Sigurjónsson: Þetta gefur okkur byr undir alla vængina
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
<i>,,Þeir áttu helling af færum þar sem þeir hefðu getað klárað þetta og voru meira með boltann þó við höfum líka fengið færi til að stela þessu. Eitt stig á útivelli, ég er sáttur með það,\"</I> sagði Atli Sigurjónsson miðjumaður Þórs eftir 1-1 jafntefli gegn Fylki í dag.
,,Við komumst yfir og fengum bara eitt mark á okkur en vorum ekki lentir 5-0 undir eftir 30 sekúndur eins og í hinum leikjunum.\"
Þórsarar hafa núna krækt í fimm stig í síðustu þremur leikjum og Atli segir að það gefi liðinu byr undir báða vængi.
,,Þetta gefur okkur byr undir alla vængina og er fínt upp á framhaldið,\" sagði Atli léttur í bragði.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.