Fotbolti.net
26.08.04 - 16:22
Magnús Már Einarsson

Rustu til Fenerbahce (Staðfest)

Kunnuleg sjón.  Rustu á bekknum hjá Barcelona, ómálaður og allt.

Kunnuleg sjón. Rustu á bekknum hjá Barcelona, ómálaður og allt.

Canon
Fenerbahce hefur fengið markvörðinn stríðsmálaða Rustu Recber að láni frá Barcelona út þetta tímabil. Hinn 31 árs gamli Rustu kom til Barcelona síðasta sumar frá einmitt Fenerbahce en náði aldrei að festa sig í sessi og var oftar en ekki á varamannabekknum hjá Barca síðastliðinn vetur á meðan að hinn ungi Victor Valdes stóð á milli stanganna. Rustu fékk nokkur tækifæri í byrjunarliði en gerði nokkur klaufamistök og var ekki svipur að sjá hann með Barcelona eftir frammistöðu hans með tyrkneska landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.