Sóknarmaðurinn Samira Suleman skoraði stórglæsilegt mark þegar ÍA vann 5-0 sigur gegn KH í lokaumferð 2. deildar kvenna um liðna helgi.
ÍA rúllaði yfir KH með Samiru fremst í flokki en hún fór algjörlega á kostum í leiknum.
Hún gerði þrennu en hún fullkomnaði þrennuna með stórglæsilegu marki.
Leikurinn var sýndur í beinni á ÍA TV og því náðist myndband af markinu sem má sjá hér fyrir neðan.
Samira kom fyrst hingað til lands árið 2015 til þess að spila með Víkingi Ólafsvík. Hún hefur einnig leikið með Aftureldingu/Fram og Sindra hér á landi en hún gekk í raðir ÍA fyrr í sumar og lék afar vel með liðinu.
Hún er með samning við ÍA út næstu leiktíð og kemur því til með að leika áfram með liðinu.
Ókey. Vá! 🔥🔥🔥 Svona á að loka þrennunni @Coach_Mira9 ! https://t.co/n3F495Iqjc
— Mist Rúnarsdóttir (@MistRunarsdotti) September 26, 2022
Athugasemdir