Fotbolti.net
26.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Danny Ings semur við Wycombe (Staðfest)

Danny Ings semur við Wycombe (Staðfest)
Canon

Mynd: Wycombe Wanderers

Framherjinn Danny Ings er búinn að skrifa undir samning við Wycombe Wanderers sem leika í League One deild enska boltans.
Ings er 34 ára gamall og hefur meðal annars leikið fyrir Liverpool, Aston Villa, West Ham og Southampton á ferlinum. Hann var hjá Sheffield United í Championship deildinni á síðustu leiktíð og reynir nú fyrir sér í League One í annað sinn á ferlinum eftir að hafa leikið þar með Bournemouth.

Ings hefur verið samningslaus frá því í sumar og byrjaði að æfa með Wycombe á dögunum sem leiddi til samningsviðræðna.

Ings gerir samning út tímabilið en Wycombe er með 9 stig eftir 7 umferðir af deildartímabilinu.

Ings, sem á eitt mark í þremur landsleikjum fyrir England, skoraði 72 mörk í 240 úrvalsdeildarleikjum á ferlinum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.