Fotbolti.net
26.09.26 - 11:54
Brynjar Ingi Erluson

Rekinn eftir tapið gegn Norður-Írum (Staðfest)

Rekinn eftir tapið gegn Norður-Írum (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Georgíska fótboltasambandið hefur rekið Frakkann Willy Sagnol eftir 1-0 tap gegn Norður-Írlandi í Þjóðadeildinni í gær.
Sagnol tók við georgíska landsliðinu árið 2021 og náði því merka afreki að stýra þjóðinni á EM 2024, fyrsta Evrópumótið í sögu Georgíu.

Þar komst liðið alla leið í 16-liða úrslit en Sagnol hefur ekki náð að fylgja þeim árangri eftir.

Hann var rekinn eftir 1-0 tapið gegn Norður-Írlandi í Þjóðadeildinni í gær og hefur Ramaz Svanadze, þjálfari U21-landsliðsins, tekið við keflinu.

Georgía mætir næst Úkraínu og Ungverjalandi áður en liðið mætir Norður-Írlandi á ný í lokaleik þessa landsliðsverkefnis.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.