26.09.26 - 10:52
Brynjar Ingi Erluson
Ward ráðinn aftur til Liverpool (Staðfest)

Julian Ward er tekinn aftur við sem yfirmaður íþróttamála hjá Liverpool

Mynd: Liverpool

Julian Ward hefur verið ráðinn yfirmaður íþróttamála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool í annað sinn, en félagið staðfesti ráðninguna í dag.
Ward þekkir vel til hjá Liverpool eftir að hafa starfað í kringum félagið síðustu 14 ár.
Hann kom fyrst til Liverpool árið 2012 og vann þá við leikmannaleit, en áður hafði hann starfað hjá Manchester City og portúgalska landsliðinu.
Síðan hefur hann sinnt ýmsum störfum hjá félaginu. Hann var meðal annars aðstoðarmaður yfirmanns íþróttamála áður en hann tók sjálfur við starfinu af Michael Edwards.
Ward yfirgaf stöðuna eftir aðeins eitt tímabil, en á þeim tíma komu leikmenn á borð við Luis Díaz, Darwin Nunez, Alexis Mac Allister og Cody Gakpo til félagsins. Þá voru einnig fengnir ungir og efnilegir leikmenn á borð við Ben Doak, Fabio Carvalho og Calvin Ramsay, auk þess sem Arthur kom á láni.
Hann hélt þó áfram að vinna fyrir FSG, eigendahóp Liverpool, þar sem hann gegndi starfi tæknilegs stjórnanda.
Nú er Ward kominn aftur til Liverpool eftir að Richard Hughes yfirgaf stöðuna að loknum félagaskiptaglugganum.
„Ég er gríðarlega spenntur fyrir því að taka að mér þetta starf og mjög þakklátur fyrir traustið sem eigendur félagsins hafa sýnt mér.
Ég veit vel hvaða áskorun fylgir þessu starfi og þekki þær kröfur og þann metnað sem ríkir hjá Liverpool, enda hef ég verið hluti af fótboltamálum félagsins í meira en áratug.“
„Þetta eru spennandi tímar hjá Liverpool, bæði innan sem utan vallar. Það eru breytingar í gangi og ný tækifæri að skapast, en á sama tíma eru menningin, gildin og grunnstoðir félagsins enn jafn sterkar og áður.“
„Við viljum halda áfram að skapa umhverfi þar sem leikmenn og starfsfólk geta náð sínu besta fram og haldið áfram að þróast.
Með Andoni innanborðs og öflugu starfsliði á AXA-æfingasvæðinu, akademíunni og AXA Melwood erum við með mikla þekkingu og hæfileika innan félagsins til að halda áfram á réttri braut.“
„Það fylgir þessu mikil ábyrgð, en líka mikil forréttindi, að fá að byggja áfram á þeirri góðu vinnu sem hefur verið unnin undanfarin tímabil,“ sagði Ward.

— Liverpool FC (@LFC) September 26, 2026