Fotbolti.net
26.11.19 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Watford ætlar ekki að skipta strax aftur um stjóra

Quique Sanchez Flores.

Quique Sanchez Flores.

Canon

Mynd: Getty Images

Sky Sports segir frá því í dag að Watford ætli ekki að skipta strax aftur um stjóra á næstunni.

Quique Sanchez Flores tók við Watford af Javi Gracia í september en gengi liðsins hefur lítið batnað síðan þá.

Watford hefur einungis unnið einn leik af níu síðan Sanchez Flores tók við stýrinu en liðið er á botni ensku úrvalsdeildarinnar.
Eftir 3-0 tap gegn Burnley um helgina fóru af stað sögur um að Flores ætti á hættu að missa starfið.

Sky Sports segir hins vegar að Flores muni fá tíma til að reyna að snúa gengi Watford við.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.