Fotbolti.net
27.01.25 - 17:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Björn Berg Bryde ekki lengur aðstoðarþjálfari Stjörnunnar

Björn Berg Bryde ekki lengur aðstoðarþjálfari Stjörnunnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Björn Berg Bryde ekki lengur aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Fótbolti.net leitaðist eftir staðfestingu á þessum tíðindum frá bæði Birni sjálfum og Stjörnunni en fékk ekki.

Björn Berg vildi ekki tjá sig um málið að neinu leyti og Helgi Hrannarr Jónsson, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar, vildi ekki segja annað en að öll starfsmannamál væru viðkvæm og væru unnin með fólki en ekki í fjölmiðlum.
Björn Berg lagði fótbolaskóna á hilluna eftir tímabilið 2023 og fór inn í þjálfarateymið sem aðstoðarmaður Jökuls Elísabetarsonar og var í því hlutverki á síðasta tímabili.

Hann er 32 ára og lék sem miðvörður á sínum leikmannaferli. Hann var í fmm ár hjá Stjörnunni, lék 61 deildarleik fyrir félagið og skoraði í þeim þrjú mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.