Fotbolti.net
30.10.26 - 11:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Annar lykilmaður Þróttar framlengir

Annar lykilmaður Þróttar framlengir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttarar eru að undirbúa sig undir átökin í Bestu deildinni næsta sumar og halda leikmenn félagsins áfram að framlengja við félagið.

Fyrr í haust skrifuðu lykilmennirnir Sigurður Egill Lárusson og Aron Snær Ingason undir nýja samninga og þeir efnilegu Örn Bragi Hinriksson og Jakob Ocares Kristjánsson gerðu slíkt hið sama.

Nú hefur miðjumaðurinn Brynjar Gautur Harðarson framlengt samning sinn við félagið og er hann nú samningsbundinn út tímabilið 2029.
Sænskur áhugi á Brynjari Gauti
TENGT EFNI

Sænskur áhugi á Brynjari Gauti

Hann var samningsbundinn út næsta tímabil en áhugi var á honum úr sænsku B-deildinni. Þrátt fyrir þann áhuga hefur Brynjar skrifað undir nýjan samning í Laugardal.

Hann er fæddur árið 2004 og var einn af bestu mönnum leiksins þegar Þróttur tryggði sér sæti í Bestu deildinni með sigri á Fylki í úrslitaleik Lengjudeildarumspilsins. Hann kom við sögu í 20 leikjum í Lengjudeildinni í sumar, byrjaði þá alla, og líka alla þrjá leiki í umspilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.