27.03.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Hermann farinn til Charlton. (Staðfest)
Hermann Hreiðarsson er búin að skrifa undir samning við Charlton og búin að standast læknisskoðun. Hann fer fyrir 900 þúsund pund frá Ipswich en Hermann skrifaði undir 3 og hálfs árs samning. Hermann má byrja strax að spila með Charlton þrátt fyrir að félagsskiptagluggin sé ekki opin þar sem að Ipswich er í fjárhagserfiðleikum og má því selja leikmenn sína.
