27.05.26 - 19:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rodri með slitið krossband

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA varð fyrir áfalli á dögunum þegar í ljós kom að Rodri hefði slitið krossband í nágrannaslagnum gegn Þór í byrjun mánaðar.
Rodri meiddist í fyrri hálfleik leiksins en þurfti að bíða talsvert eftir því að koma úr myndatöku en niðurstaða úr henni kom á dögunum og þá var ljóst að krossband í hné væri slitið. Spænski miðjumaðurinn verður ekki meira með á tímabilinu og er á leið í aðgerð.
Þetta staðfesti Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, í samtali við Fótbolta.net í gær.

Rodri er fæddur árið 1989 og kom fyrst til Íslands árið 2014 og lék þá með Sindra. Hann lék svo með Grindavík tímabilin 2015-19 og elti svo þjálfarann Óla Stefán Flóventsson í KA.
Varnarsinnaði miðjumaðurinn hefur spilað á Akureyri síðan, verið í stóru hlutverki og hjálpaði liðinu að verða bikarmeistari 2024.
Varnarsinnaði miðjumaðurinn hefur spilað á Akureyri síðan, verið í stóru hlutverki og hjálpaði liðinu að verða bikarmeistari 2024.
Rodri sleit krossband gegn Þór og verður ekki meira með á tímabilinu. Fer í aðgerð seinna í vikunni. Mögulega búinn að spila sinn síðasta leik fyrir KA. #fotboltinet
— Sæbjörn Steinke (@saebjornth) May 26, 2026