Fotbolti.net
26.10.26 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Samvinna og liðsandi ekki til staðar hjá Man Utd

Frá leik Manchester United.

Frá leik Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Hollendingurinn Rene Meulensteen, sem starfaði á sínum tíma í þjálfarateymi Manchester United, ræddi við BBC um það sem vantar upp á hjá Manchester United.
Neville: Þeir hafa brugðist félaginu herfilega
TENGT EFNI

Neville: Þeir hafa brugðist félaginu herfilega

„Lágmarkskrafan til þess að lið geti náð einhverjum árangri byggir á nokkrum grundvallaratriðum; að leggja hart að sér og vera með baráttu. Til þess að geta gert það þarf að hlaupa, menn þurfa að hlaupa og setja kraft og orku í leikinn. Þá er það samvinna og liðsandi, en hvort tveggja er alls ekki til staðar," segir Meulensteen.

„Um leið og leikmenn stíga inn á völlinn bera þeir sjálfir ábyrgð á því hversu mikla vinnu þeir leggja á sig þann daginn, af ??einhverjum ástæðum kemur þetta framlag ekki.“

Síðustu vikur hafa verið stormasamar hjá Manchester United, gengið hefur verið slæmt og leikmenn gagnrýnt stjórn félagsins og uppleggið. Stór hluti stuðningsmanna beinir pirringi sínum að leikmönnum og stjórnendum félagsins frekar en Michael Carrick en það er þó ljóst að hann er í sjóðandi heitu sæti.
Rene Meulensteen.

Rene Meulensteen.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.