26.10.26 - 14:14
Elvar Geir Magnússon
Allegri í tveggja leikja bann


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Massimiliano Allegri, stjóri Napoli, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann mun því missa af komandi deildarleikjum liðsins gegn Monza og sínu fyrrum félagi, Juventus.

TENGT EFNI
Ítalía: Sex mörk í stórleiknum í Napólí
Allegri reif sig úr jakkanum og stormaði í burtu eftir að hafa fengið rautt spjald í 3-3 jafntefli gegn Roma um helgina. En hann sneri aftur skömmu síðar bálreiður og þurftu aðstoðarmenn hans að halda aftur af honum.
Viðbrögð hans hafa leitt til tveggja leikja banns, sem þýðir að hann má ekki vera í boðvangnum í næstu leikjum liðsins; gegn Monza og í útileik gegn Juventus um næstu helgi.
Viðbrögð hans hafa leitt til tveggja leikja banns, sem þýðir að hann má ekki vera í boðvangnum í næstu leikjum liðsins; gegn Monza og í útileik gegn Juventus um næstu helgi.
Aura battle Mancini vs Allegri https://t.co/iLCXuXF472
— Andrea Lamperti (@a__lampe) October 25, 2026
