Ugarte borinn af velli - Félagaskipti frá Man Utd í hættu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Úrúgvæinn Manuel Ugarte þurfti að fara af velli þegar Úrúgvæ tapaði gegn Spáni 1-0 í lokaleik sínum á HM í nótt.
Alex Baena skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks en tapið þýðir að Úrúgvæ er úr leik.

Ugarte, sem spilar með Man Utd, meiddist illa á hné í aðdraganda marksins og hann var borinn af velli.
Það er óljóst hversu alvarleg meiðslin eru. Ugarte hefur verið sterklega orðaður í burtu frá Man Utd í sumar og ef meiðslin eru alvarleg gæti það sett strik í reikninginn.
Ugarte gekk til liðs við Man Utd frá PSG árið 2024. Hann hefur spilað 69 leiki og skorað 2 mörk. Hann kom aðeins við sögu í 24 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð.

MANUEL UGARTE ACL INJURY!!????
— TopCee (@UtdTopCee) June 27, 2026
United won't be able to sell him this summer pic.twitter.com/fjrusxmoz0 https://t.co/sqfr3xt3ij