Fotbolti.net
27.07.04 - 13:49
Magnús Már Einarsson

Bouba Diop til Fulham (Staðfest)

Bouba Diop til Fulham (Staðfest)
Canon
Fulham hefur keypt senegalska miðjumanninn Pape Bouba Diop frá franska liðinu Lens fyrir óuppgefna upphæð. Hinn 26 ára gamli Diop hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Fulham en hann vakti fyrst athygli á HM 2002 þegar að hann skoraði sigurmark Senegala gegn Frökkum í opnunarleik mótsins. Diop var einnig undir smásjá Portsmouth og hafði æft með liðinu en liðið gat ekki boðið betur en Fulham.
Diop skoraði þrjú mörk í 25 leikjum fyrir Lens í frönsku deildinni á síðustu leiktíð en Fulham ákvað að fá hann eftir að kaupin á Senegalanum, Amdy Faye frá Portmouth gengu ekki upp þar sem að hann féll á læknisskoðun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.