Fotbolti.net
27.07.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hin hliðin - Einar Freyr Halldórsson (Þór)

Hin hliðin - Einar Freyr Halldórsson (Þór)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Einar Freyr Halldórsson er öflugur leikmaður sem erlend félög hafa augastað á. Hann er uppalinn Þórsari, miðjumaður, sem hefur spilað 27 leiki fyrir unglingalandsliðin. Hann var valinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra og hefur verið í stóru hlutverki hjá Þór í Bestu deildinni í ár.

Hann er fæddur 2008 og fór í vetur til Brann í Noregi og austurrísku meistaranna í Sturm Graz og æfði með liðunum. Hann var með fyrirliðabandið í verkefni U19 landsliðsins í sumar.

Í kvöld heimsækir Þór grannana í KA í Bestu deildinni og í tilefni af því sýnir Einar á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Einar Freyr Halldórsson

Gælunafn: Einsi, Kaldi og sumir kalla mig Skeinar.

Aldur: 17.

Hjúskaparstaða: lausu.

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Ég man bara að þetta var einhver stórleikur á móti Magna Grenivík í Kjarnarfæðimótinu þegar ég var 14 ára.

Uppáhalds drykkur: Nocco stellar blend er unreal.

Uppáhalds matsölustaður: Serrano.

Uppáhalds tölvuleikur: Ætli það sé ekki bara Fifa.

Áttu hlutabréf eða rafmynt: veit ekkert hvað það er sko.

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Prison break.

Uppáhalds tónlistarmaður: Aron Can eða Birnir, get ekki valið á milli.

Uppáhalds hlaðvarp: Þungavigtin.

Uppáhalds samfélagsmiðill: Alltaf Instagram.

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fotbolti.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Það er Pétur Jóhann, hef helvíti gaman af honum.

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst:
Mikilvaegar upplysingar um lokaprof DANS2RM05 sja Moodle/Tolvupost.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: KA.

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Ég myndi segja Nathan De Cat þótt að hann gat ekki mikið i leiknum.

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Margir góðir en það er alltaf Siggi Höskulds.

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Enginn sem dettur upp í hugann á mér núna.

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Messi og Neymar.

Sætasti sigurinn: Það er leikurinn á móti Þrótti þegar við tryggðum okkur upp í bestu, maður datt í einhverja vímu þarna.

Mestu vonbrigðin: Það er að hafa ekki snert völlinn á móti Þrótti.

Uppáhalds lið í enska: Man Utd.

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég tæki alltaf Guðmar Gauta Sævarsson í Þorpið, það væri geðveikt.

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Tómas óli Kristjánsson.

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Guðmar Gauti er helvíti huggulegur.

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: No comment.

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi alltaf.

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Gult fyrir að rífa sig úr á ofan, það er galið að maður fær gult fyrir það.

Uppáhalds staður á Íslandi: Þorpið.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Örugglega fyrsta korterið á móti KR heima, mér leið eins og mig væri að dreyma.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Tek alltaf 2 létt hopp á hægri áður en ég stíg inna völlinn.

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Handboltanum í Jan og Pílunni í des.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial Vapor

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Eiginlega flestu en ég held Evís skildi ekki neitt.

Vandræðalegasta augnablik: Seinni hálfleikurinn á móti Fram núna í sumar.

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Egil Orra, Sverri Pál og Kjartan Inga við mundum rifja upp gamla góða tíma.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Tómas Óli hef alltaf jafn gaman af honum, Vilhelm Ottó og Sigfús Fannar eru líka helvíti skemmtilegir.

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ágúst Hlyns í Love Island það væri litla grillveislan að horfa á það.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: hefði getað komist í landsliðið í handbolta.

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Gunnar Orri Olsen, hélt í yngri flokkum að hann væri ömurlega leiðinlegur en þetta er mesti toppmaður sem ég þekki.

Hverju laugstu síðast: Að ég hefði getað komist í landsliðið í handbolta, gat aldrei neitt í handbolta.

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun er sick leiðinleg.

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja Ancelotti ruslið afhverju hann spilaði ekki Neymar meira á HM.

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir Akureyrarslaginn: Mætiði með alvöru læti í stúkuna og þá málum við bæinn rauðan og hvítan.
Sigfús Fannar öflugur í klefanum.

Sigfús Fannar öflugur í klefanum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tómas Óli sá efnilegasti.

Tómas Óli sá efnilegasti.

Canon

Mynd: AGF

Nathan De Cat í baráttunni.

Nathan De Cat í baráttunni.

Canon

Mynd: EPA

Messi og Neymar.

Messi og Neymar.

Canon

Mynd: EPA

Sætasti sigurinn en líka mestu vonbrigðin.

Sætasti sigurinn en líka mestu vonbrigðin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmar Gauti velkominn í Þorpið.

Guðmar Gauti velkominn í Þorpið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vilhelm Ottó sömuleiðis öflugur í klefanum.

Vilhelm Ottó sömuleiðis öflugur í klefanum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Væri flottur í Love Island.

Væri flottur í Love Island.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Páll og EInar Freyr eru hluti af mjög sigursælum 2008 árgangi hjá Þór.

Sverrir Páll og EInar Freyr eru hluti af mjög sigursælum 2008 árgangi hjá Þór.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.