27.07.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland í dag - Spennandi grannaslagur á Akureyri

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það eru tveir leikir á dagskrá í Bestu deildinni í kvöld. Það er risaslagur á Akureyri þar sem KA fær Þór í heimsókn á nýjan heimavöll.
Leikurinn fer fram á nýjum heimavelli KA en framkvæmdir eru samt sem áður í fullum gangi.
Liðin mættust á VÍS vellinum, heimavelli Þórs, 2. maí þar sem Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði sigurmark KA úr vítaspyrnu undir lokin. KA er í 10. sæti með 14 stig, þremur stigum á undan botnliði Þórs.
Þá mætast Breiðablik og ÍBV í Kópavogi. Breiðablik er átta stigum á eftir Fram sem situr í 3. sæti en ÍBV getur komist upp í 5. sæti og verið sjö stigum á eftir Breiðabliki.

mánudagur 27. júlí
Besta karla
18:00 Breiðablik-ÍBV (Eikarvöllurinn)
19:15 KA-Þór (Greifavöllurinn)
Besta karla
18:00 Breiðablik-ÍBV (Eikarvöllurinn)
19:15 KA-Þór (Greifavöllurinn)