Fotbolti.net
27.07.26 - 17:59
Brynjar Ingi Erluson

Leonardo og Maldini hætta vegna ákvörðunar forsetans

Paolo Maldini er hættur eftir aðeins sextán daga í starfi sem tæknilegur stjórnandi ítalska sambandsins

Paolo Maldini er hættur eftir aðeins sextán daga í starfi sem tæknilegur stjórnandi ítalska sambandsins

Canon

Mynd: EPA

Leonardo og Paolo Maldini eru hættir hjá ítalska fótboltasambandinu aðeins sextán dögum eftir að hafa verið ráðnir til starfa. Þetta segir Fabrizio Romano og Sky á Ítalíu.
Maldini var ráðinn tæknilegur stjórnandi hjá sambandinu en Leonardo tók við starfi sérstaks ráðgjafa.

Carlo Ancelotti og Pep Guardiola voru efstir á óskalistanum í landsliðsþjálfaraleitinni en báðir höfnuðu starfinu.

Andrea Pirlo var næsti kostur og hafði sambandið unnið að ráðningu hans. Giovanni Malago, nýr forseti sambandsins, lagðist hins vegar gegn henni vegna tengsla Pirlo við rússneska veðmálafyrirtækið Fonbet.

Malago lét undan þrýstingi frá ítölskum stjórnmálamönnum og varð niðurstaðan sú að Pirlo var ekki ráðinn. Pirlo sendi sjálfur frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði umræðuna hafa tekið sorglega stefnu.

Ákvörðun Malago olli miklum ágreiningi innan sambandsins og hafa Leonardo og Maldini nú báðir sagt upp störfum, aðeins sextán dögum eftir að þeir tóku við.

Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum er Thiago Motta nú líklegastur til að verða næsti landsliðsþjálfari.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.