27.07.26 - 18:31
Brynjar Ingi Erluson
Trafford á leið til Leeds

Mynd: EPA

Mynd: EPA
James Trafford, markvörður Manchester City, er á leið til Leeds United fyrir rúmar 40 milljónir punda.
Leeds hefur átt í viðræðum við Man City um kaup á Trafford undanfarna daga og er samkomulag sagt skammt undan.
Markvörðurinn var lengi orðaður við Newcastle United en félagið dró sig úr kapphlaupinu vegna verðmiðans.
Leeds hafði hraðar hendur og er nú við það að landa Trafford. David Ornstein hjá Athletic segir kaupverðið verða rúmar 40 milljónir punda.
Trafford, sem er 23 ára gamall, verður þriðji leikmaðurinn sem Leeds fær til sín í sumar á eftir Harry Wilson, sem kom á frjálsri sölu frá Fulham, og Tarik Muharemovic frá Sassuolo.
Englendingurinn var varamarkvörður hjá Manchester City á síðustu leiktíð, en náði þó að spila sautján leiki í öllum keppnum. Hann hafði áður staðið sig frábærlega með Burnley, þar sem hann setti meðal annars með með því að halda 30 sinnum hreinu þegar Burnley komst upp í úrvalsdeildina á síðasta ári.