Fotbolti.net
27.08.04 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Sava til Celta Vigo (Staðfest)

Sava til Celta Vigo (Staðfest)
Canon
Argentínski sóknarmaðurinn Facundo Sava mun spila með spænska liðinu Celta Vigo út þetta leiktímabil. Búið er að ganga frá árs lánssamningi við Fulham og er því ekkert því til fyrirstöðu að þessi þrítugi leikmaður fari að raða inn mörkunum í spænsku B-deildinni.
Sava átti við meiðsli að stríða á síðasta tímabili og lék lítið fyrir Fulham. Hann kom til liðsins árið 2002 frá Gimnasia La Plata og skoraði 7 mörk í 42 leikjum. Celta féll úr La Liga á síðasta tímabili og er hutverk Sava að fylla skarð Savo Milosevic sem gekk til liðs við Osasuna í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.