27.08.04 - 22:40
Magnús Már Einarsson
Ólafur Gottskálksson til Margate (Staðfest)




Markvörðurinn Ólafur Gottskálksson hefur gengið til liðs við enska utandeildarlið Margate en þetta kemur fram á heimasíðu liðsins. Eins og stendur á heimasíðu liðsins þá hefur Ólafur leikið landsleiki fyrir Íslands hönd bæði í körfu og fótbolta en hann mun leika sinn fyrsta leik fyrir Margate gegn Eastbourne Borough á morgun.
Ólafur sem að er fyrrum leikmaður Hibernian var látinn fara frá Keflavík í sumar eins og við greindum frá HÉR
