21.10.26 - 10:14
Elvar Geir Magnússon
Kvaratskhelia sleit krossband
Ekki meira með á tímabilinu

Kvaratskhelia í leiknum í gær.

Mynd: EPA

Kvaratskhelia í leiknum í gær.

Mynd: EPA
Khvicha Kvaratskhelia, vængmaður Paris St-Germain, mun gangast undir aðgerð á hné eftir að hafa slitið krossband í 4-2 sigri liðsins á Barcelona í Meistaradeildinni.
Kvaratskhelia hlaut meiðslin í baráttu við Xavi Espart og var skipt út af á 59. mínútu í gær.
Kvaratskhelia hlaut meiðslin í baráttu við Xavi Espart og var skipt út af á 59. mínútu í gær.

TENGT EFNI
Tjáði sig um meiðsli þremenninganna - „Þetta eru verstu fréttirnar“
Kvaratskhelia, sem er 25 ára, hjálpaði PSG að vinna Meistaradeildina tvisvar í röð eftir að hann fór til frönsku höfuðborgarinnar frá Napoli í janúar 2025.
Georgíski landsliðsmaðurinn hefur spilað 11 leiki fyrir PSG á þessu tímabili.
Félagið staðfesti einnig að Ousmane Dembele og Marquinhos yrðu frá í nokkrar vikur. Dembele haltraði af velli vegna meiðsla á vinstri læri og Marquinhos meiddist á hægra læri.

Communiqué médical après Barcelone
— Paris Saint-Germain (@PSG_inside) October 21, 2026
@Aspetar
???? https://t.co/83jMmiNuGF https://t.co/1zNSQHOM5n