Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   þri 28. janúar 2020 22:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stuðningsmenn Villa hlupu inn á - Trezeguet var lyft
Mynd: Getty Images
Aston Villa tryggði sér sæti í úrslitaleik enska deildabikarsins með 2-1 sigri á Leicester í síðari leik liðanna í undanúrslitunum. Fyrri leikurinn endaði 1-1 og vann Villa því einvígið 3-2.

Sigurmark Villa kom í uppbótartímanum og var það Egyptinn Trezeguet sem skoraði það.

Villa mun annað hvort mæta Manchester United eða Manchester City í úrslitaleiknum á Wembley.

Stuðningsmenn Villa voru skiljanlega mjög ánægðir með sigurinn og hlupu margir þeirra inn á völlinn þegar lokaflautið gall í kvöld. Einhverjir stuðningsmenn lyftu hetjunni Trezeguet upp og fagnaði hann því vel.

Myndband er hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner