Fotbolti.net
28.01.22 - 09:27
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Sjáðu Vlahovic mæta í læknisskoðun hjá Juventus

Vlahovic á 22 ára afmæli í dag.

Vlahovic á 22 ára afmæli í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Serbneski markahrókurinn Dusan Vlahovic er mættur til Tórínó í læknisskoðun hjá Juventus.

Juventus er að kaupa Vlahovic frá Fiorentina og gerir hann fjögurra og hálfs árs samning við ítalska stórliðið.

Vlahovic gaf áritanir og bolamyndir með stuðningsmönnum Juventus áður en hann steig inn í læknisskoðunina.

Hann fagnar 22 ára afmælisdegi sínum í dag. Hann hefur skorað 17 mörk í 21 leik í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili og var næst mesti markaskorari Evrópuboltans 2021 á eftir Robert Lewandowski.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.