Fotbolti.net
27.11.26 - 11:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Viðar Ari og Halldór á leið í Þrótt

Viðar Ari Jónsson

Viðar Ari Jónsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Viðar Ari Jónsson og Halldór Snær Georgsson eru samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið í Þrótt.

Viðar Ari er uppalinn Þróttari sem kemur í Þrótt frá HamKam í Noregi. Viðar er fæddur 1994 og lék einnig með Fjölni í yngri flokkum og hóf þar meistaraflokksferilinn. Hann fór til Brann frá Fjöni árið 2017 og hefur einnig leikið með Sanderfjord, Budapest Honved og HamKam erlendis. Hann lék með FH á láni 2018 og skipti svo í FH sumarið 2023 áður en hann samdi við HamKam.

Viðar á að baki sjö A-landsleiki og átta leiki fyrir yngri landsliðin. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var hann með fleiri samningstilboð hér á landi, þ.a.m. frá Aftureldingu. Hann er fjölhæfur leikmaður sem mest hefur spilað sem bakvörður eða vængbakvörður síðustu ár. Hann kemur á frjálsri sölu frá HamKam þar sem samningur hans er að renna út.
Þróttur vill fá Halldór Snæ - Orðaðir við fjóra
TENGT EFNI

Þróttur vill fá Halldór Snæ - Orðaðir við fjóra

Þróttur er þá að kaupa Halldór Snæ frá KR. Halldór er markvörður sem KR keypti frá Fjölni eftir tímabilið 2024. Hann hefur spilað 44 deildarleiki síðustu tvö tímabil. Halldór var orðinn kostur númer tvö hjá KR á eftir Arnari Frey Ólafssyni en Arnar var lengi frá á þessu tímabili og Halldór stóð vaktina í hans fjarveru.

Hann er samningsbundinn út tímabilið 2028 og Þróttur kaupir hann því af KR.

Halldór er fæddur árið 2004 og á að baki 14 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Þróttur verður í Bestu deildinni næsta sumar eftir að hafa endað í 2. sæti í Lengjudeildinni í sumar og vann í kjölfarið Lengjudeildarumspilið.
Halldór Snær Georgsson

Halldór Snær Georgsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.