Fotbolti.net
28.01.25 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Lookman ekki með gegn Barcelona

Lookman ekki með gegn Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Ademola Lookman er meiddur á hné en Gazzettan segir að hann hafi meiðst á æfingu í gær og talið að hann verði frá í mánuð.

Hann verður því ekki með Atalanta í Meistaradeildarleiknum gegn Barcelona á útivelli annað kvöld.
Lookman hefur skorað 14 mörk og átt 7 stoðsendingar í 27 leikjum fyrir Atalanta á þessu tímabili. Hann hjálpaði liðinu að vinna Evrópudeildina á síðasta tímabili og var valinn leikmaður ársins í Afríku.

Lookman er 27 ára og er fyrrum leikmaður Fulham, Everton og Leicester City. Hann gekk í raðir Atalanta frá RB Leipzig sumarið 2022.

Atalanta er í sjöunda sæti Meistaradeildarinnar en lokaumferðin verður spiluð annað kvöld. Átta efstu liðin fara beint í 16-liða úrslit en liðin í sætum 9-24 í umspil. Barcelona er í öðru sæti og hefur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.