Fotbolti.net
28.06.26 - 19:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Conteh með glæsilegt sigurmark gegn KR - Valur náði fram hefndum

Besta deildin: Conteh með glæsilegt sigurmark gegn KR - Valur náði fram hefndum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórir leikir fóru fram í Bestu deildinni í kvöld. Það var dramatík og nóg af mörkum.
Keflvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason kom KR yfir á sínum gamla heimavelli. Ásgeir Orri Magnússon missti af boltanum og hann fór til Arnórs sem skoraði af öryggi.

Keflvíkingar voru ekki lengi að svara því Marin Mudrazija skoraði með skalla strax í næstu sókn eftir fyrirgjöf frá Muhamed Alghoul. Bæði lið fengu tækifæri til að ná forystunni í kjölfarið en staðan var jöfn í hálfleik.

Mudrazija bætti öðru marki sínu við snemma í seinni hálfleik þegar hann kom Keflavík yfir með laglegu marki með hælnum. Forystan var ekki langlíf þar sem Eiður Gauti Sæbjörnsson jafnaði metin með skalla þremur mínútum síðar.

KR-ingar sóttu í sig veðrið í kjölfarið en Keflavík fékk einnig sín færi og þeir náðu forystunni með frábæru marki. Alpha Conteh fékk boltann og skoraði með glæsilegu skoti í fjærhornið og tryggði Keflavík sigurinn.

Það var einnig markaveisla á Akureyri þar sem Valsmenn voru í hefndarhug eftir tap gegn Þór í fyrstu umferð.

Valsmenn komust yfir þegar Samúel Kári Friðjónsson átti skalla í slá en Markus Nakkim fylgdi á eftir og skoraði. Hann var síðan aftur á ferðinni þegar hann tvöfaldaði forystu Vals með skallamarki.

Þór minnkaði muninn eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Sigfús Fannar Gunnarsson átti sendingu á Ingimar Arnar Kristjánsson inn fyrir vörn Vals og hann skoraði.

Þeir jöfnuðu síðan metin þegar Kristófer Kristjánsson skoraði eftir laglegt samspil við Ingimar.

Albin Skoglund kom Valsmönnum aftur yfir undir lok leiksins og Tryggvi Hrafn Haraldsson innsiglaði sigurinn í blálokin.

Stjarnan fékk KA í heimsókn. Hans Viktor Guðmundsson var nálægt því að koma KA yfir en hann skallaði yfir markið. Emil Atlason kom Stjörnunni yfir stuttu síðar með föstu skoti inn í teig.

Benedikt Warén bætti öðru markinu við suttu síðar eftir sendingu frá Örvari Eggertssyni inn á teiginn.

KA minnkaði muninn snemma í seinni hálfleik þegar Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði með góðu skoti.

KA var nálægt því að jafna metin þegar Árni Snær Ólafsson gerði sig sekan um slæm mistök og sendi boltann á Jakob Héðinn en hann skaut framhjá.

Það var síðan KA-maðurinn fyrrverandi, Þorri Mar Þórisson, sem innsiglaði sigur Stjörnunnar í blálokin.

FH fékk ÍBV í heimsókn í botnslag en Eyjamenn hafa verið í góðum gír og voru taplausir í fjórum leikjum í röð fyrir leik kvöldsins.

FH náði forystunni eftir 11 mínútna leik þegar Úlfúr Ágúst Björnsson átti skalla sem fór af varnarmanni ÍBV og í netið.

Omar Sowe kom inn á í hálfleik og var ekki lengi að láta til sín taka. Hann pressaði á Jökul Andrésson sem sparkaði boltanum í Omar og boltinn fór í netið.

Úrslit kvöldsins og staðan í deildinni

FH 1 - 1 ÍBV
1-0 Úlfur Ágúst Björnsson ('11 )
1-1 Omar Sowe ('46 )
Lestu um leikinn

Stjarnan 3 - 1 KA
1-0 Emil Atlason ('18 )
2-0 Benedikt V. Warén ('21 )
2-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('51 )
3-1 Þorri Mar Þórisson ('95 )
Lestu um leikinn

Þór 2 - 4 Valur
0-1 Markus Lund Nakkim ('19 )
0-2 Markus Lund Nakkim ('37 )
1-2 Christian Jakobsen ('66 )
2-2 Kristófer Kristjánsson ('70 )
2-3 Albin Skoglund ('88 )
2-4 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('94 )
Lestu um leikinn

Keflavík 3 - 2 KR
0-1 Arnór Ingvi Traustason ('10 )
1-1 Marin Mudrazija ('11 )
2-1 Marin Mudrazija ('52 )
2-2 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('55 )
3-2 Alpha Conteh ('90 )
Lestu um leikinn
Besta deildin: Conteh með glæsilegt sigurmark gegn KR - Valur náði fram hefndum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Conteh með glæsilegt sigurmark gegn KR - Valur náði fram hefndum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2Fram15+1333
3KR15+1732
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.