Fotbolti.net
18.07.26 - 19:17
Ívan Guðjón Baldursson

Orri skoraði - Andri gerði jafntefli við Batman

Orri skoraði - Andri gerði jafntefli við Batman
Canon

Mynd: Instagram/orrioskarsson

Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði Real Sociedad og skoraði eina mark liðsins í jafntefli í æfingaleik gegn Racing Santander í dag.
Orri Steinn lék fyrri hálfleikinn og er að vinna í að koma sér aftur í leikform eftir sumarfrí. Sociedad á framundan leiki við Wolves, Aston Villa, Toulouse og Íslendingalið Köln.

Lille skoraði þá þrjú mörk gegn andstæðingum frá Belgíu á meðan Andri Fannar Baldursson og félagar í Kasimpasa gerðu jafntefli við Batman. Hákon Arnar Haraldsson var ekki í byrjunarliði Lille.

Adam Ingi Benediktsson og félagar í liði AB léku tvo æfingaleiki þar sem þeir unnu einn og gerðu eitt jafntefli á meðan Amin Cosic var ekki í hóp hjá Viking.

Viking vann í norsku deildinni og er þar í öðru sæti með 30 stig eftir 12 umferðir, aðeins einu stigi á eftir toppliði Tromsö og með þrjá leiki til góða.

Brann lagði þá Molde að velli með Kristal Mána Ingason í byrjunarliðinu. Kristall spilaði í rúma klukkustund og kom Sævar Atli Magnússon inn af bekknum skömmu síðar. Brann er í sjötta sæti eftir sigurinn, með 19 stig eftir 14 umferðir.

Brynjar Ingi Bjarnason kom svo inn af bekknum í fjörugum sigri Greuther Fürth gegn FC Zürich og var Kjartan Már Kjartansson ónotaður varamaður í sigri Aberdeen.

Real Sociedad 1 - 1 Racing Santander
1-0 Orri Steinn Óskarsson ('19)
1-1 G. Jimenez ('82)

Lille 3 - 0 RAAL La Louviere

Kasimpasa 1 - 1 Batman Petrolspor

Brönshöj 1 - 2 AB

AB 3 - 3 B.93

Viking 2 - 1 Sandefjord

Molde 1 - 2 Brann

Zurich 2 - 3 Greuther Furth

Aberdeen 2 - 1 Queen's Park

LASK 2 - 0 Dusseldorf

Harelbeke 1 - 0 Kortrijk
Orri skoraði - Andri gerði jafntefli við Batman
Canon

Mynd: Sportsklubben Brann

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.